15. mars 2010
Virknimótið 2010

Næstkomandi föstudag 19 mars verður haldið Virknimótið í skák. Mótið mun fara fram í húsakynnum Virkjunnar sem er staðsett að flugvallarvegi 740, Ásbrú. Það stendur til að það verði stofnaður skákhópur sem mun koma saman á föstudögum klukkan 13 og er þetta mót byrjunin á þeirri starfsemi.
Virkjun mannauðs á Reykjanesi hóf starfsemi sína 15. janúar 2009 og er til húsa í byggingu 740 á Vallarheiði (sjá kort á virkjun.net), en þar er verið að byggja upp starfsemi fyrir íbúa á Reykjanesi sem leitar nýrra tækifæra í atvinnu eða námi. Þá er Virkjun ekki síður samkomustaður fólks sem vill nýta það áfall sem atvinnuleysi er hverjum og einum til að búa sig undir ný tækifæri í atvinnu með námi, námskeiðum eða mannbætandi tómstundum og menningarstarfsemi sem einnig er í boði í Virkjun.
Við hvetjum alla skákáhugamenn til þess að mæta, tefla og miðla reynslu sinni til annarra. Mæting er bæting í skák eins og öllu öðru í lífinu. Hlökkum til að sjá sem flesta :)
Virknimótinu er frestað um óákveðinn tíma.
Til baka
|