Lög Skákfélags Reykjanesbæjar
1.gr
Félagið heitir "Skákfélag Reykjanesbæjar". Heimili þess og varnarþing er í Reykjanesbæ.
2.gr
Tilgangur félagsins er skákiðkun, að efla skákiðkun og halda uppi góðu félagsstarfi. Skulu í því skyni haldin skákmót fyrir félagsmenn.
3.gr
Félagið skal vera aðili að Skáksambandi Íslands. Rétt til inngöngu í félagið hafa allir einstaklingar nema þeir sem hefur verið vísað úr félaginu eða er bönnuð innganga í félagið samkvæmt ákvörðun stjórnar eða félagsfundar.
4.gr
Á félagsfundum, m.a. aðalfundum, hafa allir skuldlausir félagsmenn, 16 ára og eldri, sem ekki eru fullgildir félagar í öðrum félögum innan Skáksambands Íslands, atkvæðisrétt, enda hafa þeir verið í félaginu a.m.k. næstu 3 mánuði fyrir fund. Þeir sem kosnir eru í stjórn félagsins fá þó þegar atkvæðisrétt.
5.gr
Aðalfundur félagsins hefur úrskurðarvald í öllum málum þess. Hann skal haldinn í vetrarbyrjun ár hvert. Skal til fundarins boðað, bréfleiðis til atkvæðisbærra félagsmanna, a.m.k. 10 dögum fyrir fund. Í fundarboði skal getið þeirra mála sem kunnugt er að lögð verði fyrir fundinn auk venjulegra aðalfundarstarfa, sbr. 7. grein. Skýrsla stjórnar og reikningar félagsins skulu liggja fyrir a.m.k. 10 dögum fyrir aðalfund.
6.gr
Á aðalfundi skal fjalla um eftirfarandi liði:
- Kosinn fundarstjóri og fundarritari.
- Flutt skýrsla stjórnar.
- Lagðir fram reikningar félagsins sem ná yfir síðast liðið almanaksár.
- Umræður um störf stjórnar og afgreiðsla reikninga.
- Kosning formanns.
- Kosning stjórnar.
- Kosnir tveir endurskoðendur að reikningum félagsins.
- Félagsgjöld ákvörðuð.
- Breytingar á lögum og reglum félagsins.
- Önnur mál.
7.gr
Með samþykki fundar má breyta röð dagskrárliða. Á fundinum ræður einfaldur meirihluti úrslitum, nema öðruvísi sé ákveðið í lögum þessum. Verði atkvæði jöfn við stjórnar- eða nefndarkjör ræður hlutkesti.
8.gr
Kalla skal saman sérstakan félagsfund ef a.m.k. 2/3 stjórnar ákveður það eða a.m.k. 20 atkvæðisbærir félagsmenn óska þessa. Hefur sérstakur félagsfundur sama vægi og aðalfundur og gilda um hann sömu reglur, t.a.m. hvað varðar boðun hans. Þó skal aðeins heimilt að taka til afgreiðslu á sérstökum félagsfundum þau mál og þær tillögur sem sérstaklega er greint frá í fundarboði. Þá er eingöngu hægt að breyta lögum þessum á aðalfundi.
9.gr
Í stjórn félagsins skulu kosnir auk formanns fjórir meðstjórnendur. Stjórnin skiptir með sér starfsheitum og verkefnum. Innan stjórnar ræður einfaldur meirihluti atkvæða.
10.gr
Stjórnin er æðsta vald félagsins á milli félagsfunda. Hún skal, að svo miklu leyti sem henni er unnt, sjá um að haldin séu skákmót innan félagsins, er öllum félagsmönnum sé heimill aðgangur að. Stjórnin velur skákstjóra er sjái um framkvæmd mótanna.
11.gr
Stjórninni, eða eftir atvikum félagsfundi, er heimilt að vísa manni úr félaginu eða meina manni að ganga í félagið ef a.m.k. 2/3 hluti fundarmanna ákveða það. Með sama hætti er heimilt að setja menn í keppnisbann.
12.gr
Allar ályktanir og bindandi ákvarðanir stjórnar og félagsfundar skulu færðar í gerðabækur.
13.gr
Verði félagið lagt niður skulu eignir þess afhentar Skáksambandi Íslands til varðveislu, nema 2/3 hluti fundarmanna á félagsfundi ákveði annað.
14.gr
Lögum þessum er einungis hægt að breyta á aðalfundi með 2/3 hluta atkvæða enda hafi breytingatillögurnar verið tilgreindar í fundarboði.